16.08.2011 22:47

Úr myndasafni....


Á rúntinum fyrir þjóðhátíð 2006

Höfða(hittingur) 2006


Tridentinn sem að Biggi Jóns átti

REISIÐ 2003


Kawinn sem að Einar Sigþórs átti í 100 ár nýkominn úr sprautun

Kawinn sem að Eyþór á Dala-Rafn átti nýkominn úr sprautun

2006

Hjólið sem ég lét mig dreyma um sumarið 2007

Binni á Husky-num 2006 eða 2007 á nýmáluðum felgum

CBX-inn hjá Gunna 2007

Nokkrum mínútum eftir að Biggi og Lilli styttu Nortoninn 1998 eða 1999

900 Ninjan mín í græna gallanum 2008

Aðalfundur Drullusokka 2008

Föstudagurinn langi 2009

Reykjavík 2009

Sjómannadagurinn 2009

Monsterinn hans Bigga síðastl. vor


14.08.2011 23:56

........................................................

  Hér kemur smá öppdeit........

7.7 tók ég myndavélina með mér á rúntinn, Egill var í bænum á Hallanum nýsleiktum, það var flott veður þetta kvöld og ég smellti myndum af nokkrum snillingum og hjólunum þeirra.



fleiri myndir

  Hér eru svo myndir af 750 Hondunni hans Tryggva, hann verslaði sér annað tankasett sem ég málaði í öðrum lit fyrir hann.. 

 fyrir

  allt í vinnslu

 eftir   fleiri myndir

 Bjartey kom í fyrsta skiptið aftan á blade-ið núna í júlí, og hafði bara gaman af.

 búið að pakka stelpunni inn.....
fleiri myndir

 Gummi gat ekki sannfært konuna um að geyma það að skvera innkeyrsluna til þess að versla 2011 Repsol Fireblade, þannig að hann keypti bara hugger á hjólið sitt sem var málaður í Bragganum.


 Við Bjartey Ósk þurftum að bruna alla leið í Húsafell til að sjá útkomuna

 og við vorum bara nokkuð sátt við útkomuna. fleiri myndir

Ég hitti Rúnar og Jarl 20.7 og við hjóluðum þann daginn í eðal blíðu,

 Byrjuðum á að skoða úrvalið í umboðunum í höfuðborginni

Næst var skemmtiatriði Fjallabræðra og Lúðrasveitar Vm. fyrir þjóðhátíð  uppsett af okkur Rúnari og æft hjá Jarli og Halldóri G.

Svo fórum við Nesjavallaleið á Þingvelli,, fínasti rúntur þennan daginn.
fleiri myndir

Hér eru svo nokkrar myndir af tveimur af Hondunum mínum


Svo ætla ég að enda færsluna á nokkrum myndum sem Sindri Georgs tók,, töff myndir hjá peyjanum.


fleiri myndir

 

26.06.2011 23:32

Göngutúr 24.06.11

 7 tinda gangan var haldin hér í Eyjum á föstudagskvöldið til styrktar Krabbavörn Vestmannaeyja. Ég, Bjartey og Sindri Gogga fórum saman. Við fórum af stað rúmlega átta um kvöldið, löbbuðum upp á Dalfjall, þaðan yfir Eggjar, niður Hánna, uppá Klif, Heimaklett, Eldfell, Helgafell og Sæfell. Við vorum 5 í okkar holli (Elli sjúkraþjálfari og John Berry voru með okkur). Þetta eru rétt tæplega 15km. frá Herjólfsdal og uppá Sæfell og við fórum þetta á 3klst. og 18.min. Veðrið var lygilega gott, útsýnið frábært og kvöldið alveg hrikalega skemmtilegt í alla staði.

Á leiðinni uppá Dalfjall

Þessi eyja er alveg hrikalega falleg í svona veðri.

Hér sést Klifið og Heimaklettur frá óvenjulegu sjónarhorni.

Bjartey komin uppá Molda

Tekið uppi á Klifi

Og næst var það Heimaklettur, Sindri, Elli, Bjartey og Johnny.

Tekið á Heimakletti


Uppi á Eldfelli

Svo 6.tindurinn Helgafell

Tekið frá Sæfelli

Allir sáttir eftir skemmtilegt kvöld.

Þetta er sjaldséð sjón í Eyjum.

Hér eru svo fleiri myndir

19.06.2011 23:22

Hjólatúr 18.06.11

Á laugardaginn fórum við Daddi kl 08:30 uppá land á hjólunum og byrjuðum á að bruna áleiðis til Reykjavíkur, Freyr Atla var í samfloti með okkur , en hann var á leiðinni í bæinn. Grétar Már og Gummi komu á móti okkur og við hittumst við Hveragerði, þá var ákveðið að fara Nesjarvallaleið en við byrjuðum á bensínstoppi í Litlu kaffistofunni.

En í þessu spjalli var tekin ákvörðun um að fresta Nesjavallarleið um óákveðinn tíma og taka pitstop í höfuðborginni.

Þar sem Daddi verslaði nýtt framdekk og.....

Gummi nýtt afturdekk.

Það kom sér vel að það er öflugt verkfærasettið í Hondunni.

Næsta stopp var í Nítró þar sem Daddi pantaði monster nærbuxur ,og þessi ágæti maður á myndinni hér fyrir ofan fræddi okkur um það að eina þróunin í mótorhjólum síðan 1968 væri áreiðanleikinn í hjólunum allt hitt hefur staðið í stað . En myndin er tekin þegar að Grétar sagði þessum ágæta manni frá því að hann vissi um fullt af fólki í Reykjavík sem að hefði hreinlega drepist úr leiðindum, já bara drepist..........................
  Þar næst stoppuðum við í Púkanum Grensásvegi þar sem við hittum Egil, en Egill var þá að koma úr Harley umboðinu þar sem að hann var að ganga frá sérpöntun á hliðarvagni á Harley-inn sinn.

 Hér erum við á Þingvöllum og Gummi já hann var í símanum.

 Þonnin þrjú, ís í tilefni af því að Gummi var tekinn inn í Team Þ. En þeir sættust á að taka hann inn eftir að hann sannfærði Dadda og Grétar um að hann hafi aldrei opnað Herbalife pakkann sem hann keypti um árið.

 Næsta pitstop var á tjaldstæðinu á Laugarvatni,

Þarna komum við aftur að því hversu öflugt verkfærasettið í Hondunni er, en hér er Gummi að reyna að koma miðstöð í fellihýsi í gang fyrir vinafólk sitt.

Eftir góðann hring um suðurlandið í fyrstu alvöru sumarblíðunni brunuðum við aftur í bæinn þar sem við hittum Frey, og þaðan fórum við þrír í höfnina með einu pizzastoppi á Selfossi og heim kl. 22. Mælirinn á Blade-inu sýndi 518,4 km eftir daginn,þannig að maður var orðinn aðeins veðraður í lok dags.

Takk kærlega fyrir góðan dag.

Restin af myndunum er hér

05.06.2011 01:14

Breytingar

       Hér eru fyrir og eftir myndir af hjólinu eftir síðustu breytingar

Fyrir

Eftir

Fyrir

Eftir         ( :

29.05.2011 22:37

Mótorhjólasýning í íþróttahúsinu

 Á laugardaginn stóð vélhjólaklúbburinn Drullusokkar fyrir flottri mótorhjólasýningu í íþróttahúsinu hér í Eyjum.Sýningin var frá 11-18 og heppnaðist vel. Veðrið lék við okkur og talsvert af hjólafólki frá fastalandinu gerði sér ferð hingað á skerið okkar til þess að sjá Eyjahjólin og/eða smakka á pulsunum sem voru grillaðar fyrir gesti sýningarinnar. Það voru u.þ.b. 110 hjól í salnum, lang flest frá Eyjum.
Nítró kom reyndar með nokkra nýja fáka sem þeir kynntu fyrir okkur eyjafólkinu. Eftir sýningu voru farnir nokkrir rúntir um eyjuna og síðan hittist hluti fólksins á Conero og eyddi kvöldinu þar. En eins og ég sagði áðan var veðrið flott um helgina og rúllaði ég þar af leiðandi upp nokkrum kílómetrum eins og svo margir aðrir Eyjamenn .


  Fimmtudagskvöldið var notað í að sjæna hjólin

  Föstudagsmorguninn fór í að græja CBX-inn og kvöldið í að raða hjólunum í salinn

  GM-múr hjónin mættu á skerið með græjurnar sýnar

  Grétar Már var á sjó og fékk engann til að skola af hjólinu, þannig að málið var leyst með þessari yfirbreiðslu.

  Bjartey Ósk mætti í mótorhjólajakkanum eða údú-húl-akki eins og hún segir sjálf......

  Án efa fallegasta hjól sýningarinnar (allavega að mínu mati)

  900 Hornet-ið hjá Svalla

  Jenni  einbeittur við grillið

  Træömfhhh eins og stendur á tanknum

Hér eru svo allar myndirnar mínar af sýningunni.

23.05.2011 21:26

KAWASAKI ZX10 2008


Daddi verslaði sér annað hjól um helgina, hjól af gerðinni Kawasaki ZX-10 árg.2008. Hjólið er eina sinnar tegundar á landinu, en þau voru flutt tvö ný inn árið 2008, hitt hjólið var selt til Finnlands.
Hjólið er í hinum rétta Kawasaki mean green lit. Flott hjól hjá peyjanum.
Ég þarf svo að mynda hjólið við tækifæri en hér er ein mynd sem að hann sendi mér.

22.05.2011 00:53

Race 2011

  Bræðraslagurinn mikli fór fram síðastliðið föstudagskvöld, þ.e.a.s. spyrnan á milli Tryggva (HONDA CB750 four 1974) og Adda Steina ( KTM 530 EXCR 2008). Erfitt var að gera sér grein fyrir hvor myndi hafa þetta, því að hvorugt hjólið er gert fyrir götuspyrnur og svo eru hjólin svo gífurlega ólík. En ef við skoðuðum tölur á blaði lá sigurinn Adda megin.
Honda CB750 1974 : 67hö. orginal (þetta hjól ca.77-80hö borað í 836cc) 220kg þurrvigt 0,35 hö/kg og ökumaður 20+kg þyngri
KTM 530 2008 : ca 60hö 114kg þurrvigt, 0,52 hö/kg og léttari ökumaður.
Enduro menn voru nokkuð sigurvissir og þegar Addi mætti á svæðið var hann með GoPro video-vél á hjálminum sem að sneri aftur, til að mynda stofumubluna upp brekkuna, því að samkvæmt útreikningum átti mublan að vera fyrir aftan.
Addi átti í vandræðum með að koma hjólinu af stað og varð hann þar að leiðandi langt fyrir aftan í spyrnu 1 og 2, en í spyrnu þrjú náði karlinn glimrandi starti og var á undan meiri hlutann af brekkunni en sú gamla seig fram úr fyrir rest.
Leikar fóru því 3-0. Enduromenn vildu meina að aðeins síðasta spyrnan hafi verið marktæk, en stór hluti af spyrnukeppnum er jú að koma græjunum af stað, en Addi sýndi nú samt að drullumallarinn er þræl öflugur, ég fékk nú að prófa hjá honum og fannst mér hjólið virkilega skemmtilegt, frábært tog og fer vel með mann,og það er enginn barnaleikur að koma því af stað án þess að það lyftist eins og ótemja en snilldar enduro tæki. Úrslitin fóru mis vel/illa í mannskapinn ( : , en þetta var virkilega skemmtilegt, kannski aðalega útaf því hversu fáránlegt þetta er, nýleg enduro-sleggja vs. superbikehjól sem kom fyrst á markað 1969 SNILLD.


Hér sést GoPro vélin,henni var svo snúið við fyrir síðustu spyrnuna Hér er video úr henni, á þessu videoi sést hversu öflugur mallarinn í raun og veru er.


    2x "61

Spyrna 2.

Spyrna 3, hér er það nokkuð jafnt

Þetta var þræl gaman , hér eru svo fleiri myndir frá mér.
Einnig myndir frá Sindra hér,
og á Drullusokkasíðunni.


15.05.2011 22:25

.........

  Jæja þá er kominn tími á smá færslu,, allt að gerast í Eyjum eins og maðurinn sagði.
Fiddi Palli er kominn með Zephyrinn á götuna og kemur hann vægast sagt hrikalega vel út.
Skarpi er kominn á skerið eftir 3.vikna fertugsafmæli á Spáni með fjölskyldunni, hann renndi við hjá mér í dag á súkkunni. Björgvin Hlyns var að versla sér 750 súkku árg.2000.
Daddi fór með hjólið sitt á sölu í bænum og stefnir á að fá sér stærra hjól, og ég er búinn að fá mér aðra standa á blade-ið (ekki úr byko) og þeir passa. Hér fyrir neðan eru svo myndir sem tengjast þessu innihaldsmikla fréttaskoti af hjólalífinu í Eyjum.



    Kawinn heldur betur sjænaður,, svona á þetta að vera.

    Fyrir

    Eftir.          fleiri myndir hér

    Skarpi á Súkkunni, hjólið er mjög flott hjá honum og karlinn allur í stíl,,, Töff.. (albúm hér)

    750 Súkkan hans Björgvins,,, smekklegasta hjól (albúm hér)

    Hér er svo blade-ið í olíuskiptum á nyju stöndunum sem ég keypti af Agli Kristjáns.

    Geiri race benti á að það væru fínir standar á motorhjol.is ég tjekkaði á þeirri síðu og þar er margt sniðugt og á ágætis verði, t.d. mikið dekkjaúrval,, endilega skoðið síðuna.....

    Félagarnir Daddi og Grétar að verða ferðaklárir.

    (albúm)
    Hér með er þessu skúbbi lokið

09.05.2011 22:37

Rúntur um suðurlandið

  Ég brunaði uppá land seinni partinn á laugardaginn (07.05.11) Við Gummi kíktum rúnt um bæinn um kvöldið, slefuðum aðeins á gluggana í Bernhard, 1x nýtt HRC og 1x nýtt repsol blade þar, ásamt ýmsum öðrum smekklegum græjum, kíktum á hjólamenninguna í miðbænum, slátruðum sitthvorum hlöllanum, næst kíktum við á gluggana í súkku-umboðinu, nokkur ný hjól þar, mjög flott en ég varð samt ekkert var við slef hjá mér á þeim glugga.
  Á sunnudaginn tókum við ágætis hring um suðurlandið og kíktum við á einum sveitarbæ við Flúðir þar sem vel var tekið á móti okkur gúmmíkörlunum á krossurunum úr bænum eins og e-r hafði orð á á sveitarbænum. Við fengum skoðunartúr um svæðið sem endaði með þessu fína kaffiboði inní húsi.
Mér varð svo um að sjá öll þessi verðmæti á einum stað að ég gleymdi alveg að nota myndavélina.
Ég tók sem sagt allt of lítið af myndum í ferðinni, en þó e-ð smá. Ég rúllaði 500 km í þessari reisu og hafði mikið gaman af.


Við lokuðum einni brú á leiðinni fyrir myndatöku, ég veit ekkert hvaða brú þetta er, hún er á suðurlandi og það var e-ð vökvakennt efni sem rann undir hana (mjög líklega vatn).

Gummi með eina af Hagkaups-pósunum sínum

Hér erum við svo komnir inní hlöðu... Hvað skildi þetta vera ?????

Já komið þið sæl og blessuð,, hér leyndist gamli Trans Am-inn hans Jóns Steinars


Hér höfum við þessa fínu cortinu,, þetta var mjög skemtileg heimsókn.

Hér eru svo restin af myndunum.
Og hér eru svo nokkrar myndir sem að ég tók þegar ég fór með hjólið í skoðun á fimmtudaginn.

09.05.2011 22:23

Afa Benzinn

Síðasta föstudag var Benzanum komið inn á verkstæði. Jón notaði fyrst "jeppann" til að færa bílinn til og svo kranann á Volvonum sínum til að koma bílnum inn og fór létt með það. Ég læt fylgja nokkrar myndir .

Jón á dráttarbílnum

Svo var honum kippt til að aftan

Næst var honum ýtt inn með krananum, maðurinn er helv. nettur á krananum


Sér ekki á þessu!!!!!!! stefnan er að hafa bílinn klárann fyrir 40 ára goslokarafmælið (eftir 2.ár)
Ef fólk er að tala um að það vanti gosminjar í Eyjum þá er þetta allavega stórt gosminjaverkefni.
Bærinn var jú allur hreinsaður á svona bílum, og þessi var þar á meðal.

Það eru svo nýjar myndir í afa-benz albúminu

01.05.2011 13:56

1.Maí

Jæja þá er kominn 1.maí, dóttir mín er 2.ára í dag og veðrið hér á eyjunni er frábært, logn, 10°c hiti og allt þurrt, eðal hjólaveður. 1.maí keyrslunni var frestað í höfuðborginni vegna snjókomu, 10cm jafnfallinn snjór. Þá fór ég að spá í hvernig hjóli væri best að vera á ef sumarið yrði svona, ef ég myndi halda mig við Fireblade þá fengi ég mér allavega blade með abs, og jafnvel á kubbadekkjum.

Hér er hjól án abs

Hér er hjólið með abs, helsti útlitsmunurinn er sá að búið er að hylja mótorinn vinstra meginn með plasthlíf, vegna þess að þarna fyrir innan er hluti af abs kerfinu sem er ekki að gera mikið fyrir augað, mér finnst nú alltaf ljótara þegar mótorinn er hulinn, en hvað um það. Abs hjólið er líka svolítið þyngra.

Hér er svo Fireblade á kubbum

Hér er svo video sem sínir muninn á hjóli með og án abs bremsukerfis.

 

25.04.2011 15:02

Ökuleikni

       Þokkalega flinkur gaur á 400kg Harley

23.04.2011 17:22

Laugardagurinn 23.04.11

Ég renndi smá rúnt í dag í frekar óspennandi veðri, en samt skársta veðrinu sem er í boði páskahelgina. Ég hitti Tryggva og Lauga, Tryggvi var að mynda Lauga og meiraprófshjólið hans.
Laugi var búinn að hjóla þónokkrar mílur í dag og fílar græjuna meira og meira með hverri mílu. Á meðan á myndatöku stóð kom Svanur Gunnsteins á CRF-inu sem hann var að versla hjólið er götuskráð X-hjól árg. 2005 en kom fyrst á götuna 2008, flott hjól.
Svo hitti ég Binna á GasGas-inu (sem hefur fengið nafnið Hermann). Hann sýndi mér nokkra gamla nöðrutakta á bryggjunni, þar á meðal þetta eðal kúkaprjón. Ég tók e-ð af myndum og hjólaði svo sjálfur nokkra kílómetra.


Laugi við Triumph-inn

Tryggvi,Svanur og Laugi að ræða hin ýmsu mál.

Hér eru svo Binni og Hermann í þessu fína kúkaprjóni

Þeir tóku svo eitt alvöruprjón fyrir mig í restina.

Hér er svo restin af myndunum sem teknar voru í dag
Flettingar í dag: 11
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 13
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 41033
Samtals gestir: 14145
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 16:08:12

Tenglar